|
BARCELONA
Katalónía er norð-austur hérað Spánar og er Barcelona höfuðborg þess, með um 1,5 milljón íbúa (4,2 milljónir með stór-Barcelona svæðiinu). Landslagið er fjölbreytilegt - Píreneafjöllin í norðri, víðáttumiklar sléttur í miðjunni og langar hvítar 4 km strendur með einangruðum víkum meðfram strandlengjunni og þjóðgarð í vestri gera þennan stað spennandi að búa á. Meðalhiti á sumrin er um 25°C og um 300 sólskinsdagar á ári.
Sjálf Barcelona býður upp á mikið af menningarviðburðum, svo sem leikhús, sýningar og tónleika, og er hún talin ein áhrifamesta og nútímalegasta borg Spánar. Skólinn okkar er staðsettur í hjarta Barcelona, aðeins um 5 mínútna gangur til Las Ramblas og Plaza de Cataluna, sem er aðaltorgið í Barcelona og 15 mínútna gangur niður á strönd. Ólympíuleikarnir 1992 settu sitt mark á útlit borgarinnar og er hún sannarlega orðin ein af helstu menningarborgum heims. Útlit borgarinnar er tvinnað saman úr nútíma byggingalist og sögulegum byggingum sem finnast í elstu hverfum borgarinnar. Barcelona er heimsþekkt fyrir módernískar byggingar sínar, sem byggðar voru fyrir "heimssýninguna" í lok síðustu aldar af arkitektum eins og Puig i Cadafalch, Doménech i Montaner og Antoní Gaudí.
Breiðgöturnar í Barcelona eru fullar af lífi dag og nótt. Göngutúr niður Römbluna - frægu götuna sem liggur niður að hafinu, býður upp á forvitnilega blöndu af fögrum byggingum, tískubúðum, þægilegum kaffihúsum og götulistafólki sem fá þig til að staldra við aðeins lengur en þú ætlaðir þér. Einnig býður borgin uppá heillandi markaði, til dæmis hinn líflega "Boqueria" þar sem gefur að líta enn einn af dýrgripum borgarinnar.Þessi skemmtilega blanda og fólk allsstaðar að úr heiminum, gerir Barcelona að einni fegurstu og skemmtilegustu borginni við Miðjarðarhafið.

CANET
Canet er staðsett á Miðjarðarhafsströndinni, u.þ.b. 40 km norður af Barcelona. Þetta er lítill bær, með einungis 10.000 íbúa og frekar lítinn ferðamannastraum. Bærinn skartar mörgum fögrum ströndum, og er hægt að njóta þeirra með göngu í flæðarmálinu. Canet er tilvalinn staður fyrir rólega dvöl í framandi landi. Frá Canet er einungis um 45 mínútna lestarferð inn í Barcelona og getur maður upplifað það besta á báðum stöðum.
MÁLAGA
Höfuðborg Costa del Sol er heimsfræg bæði fyrir einstakt mannlíf og þægilegan hita út allt árið. Jafnvel á veturnar getur hitinn farið yfir 20°C. Malaga, borgin sem Pablo Picasso fæddist í, einkennist af langri sögu og litríku nútímalífi. Kvikmyndahús, leikhús og óteljandi barir og kaffihús gefa engum tíma til að láta sér leiðast. Skólinn okkar er staðsettur í miðbæ Malaga, rétt hjá Plaza de la Merced og aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni. Næturlífið er skemmtilegt og líflegt, sérstaklega um Semana Santa, páskanna og Feria de Agosto þá er fjör langt fram á nótt. Fyrir þá sem sækjast eftir náttúrufegurð og útivist er gamli bærinn í Antequera í einungis 40 km fjarlægð, með sína ótrúlegu Karstian klettasúlur og hinn mikilfenglega "veg konungsins" sem liggur niður klettaveggi Garganta de El Chorro. Abdalajis dalurinn, er einnig nálægt og er líkt og El Chorro, paradís fyrir göngu- og klifurgarpa og býður upp á hrífandi útsýni og upp í háloftunum má sjá svifdreka sem taka á loft frá tindinum..
O GROVE
Er týpískt galískt fiskiþorp sem er staðsett á norðurströnd lítillar hálfeyjar, og aðeins mjó strandræma tengir hana við meginlandið. O Grove stendur við "Ria de Arousa" og Atlantshafið og er paradís fyrir þá sem elska hafið. Veitingahús bjóða upp á mikið úrval af sjávarréttum sem og öðru lostæti og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Á kvöldin eru svo diskótekin og barirnir opnir langt fram á nótt.Aðeins 15.000 manns búa í O´Grove og ferðamenn sem heimsækja bæinn á sumrin eru flestir frá Spáni. Jafnvel á sumrin er auðvelt að finna hljóðlátan stað á einni af mörgu litlu ströndunum á svæðinu. Og ef þú kýst líflegra andrúmsloft er hin fræga 3 km langa Lanzada strönd tilvalin fyrir allt frá blaki til seglbretta. Staðir sem vert er að skoða í nágrenninu eru t.d. Santiago de Compostela, Portúgalski Peneda þjóðgarðurinn, ósnertu eyjarnar Ons og Cies og "Costa de la Muerte".
PRADO DEL REY
Prado del Rey er smábær sem er eitt af hvítu þorpunum í Andalúsíu og er staðsettur í nágrenni Cádiz milli Jerez og Ronda í fjalllendi sem er allt að 1600 metra hátt.
Hann liggur á frábærum stað milli tveggja náttúrugarða, Parque Natural Sierra de Grazalema og Parque Natural Los Alcornocales, sem bjóða upp á fjölbreytilegt úrval útivistar t.d. fjallahjólreiðar, hestamennsku (Andalúsíuhestar), kanósiglingar, klifur o.fl. Þó íbúar Prado del Rey séu einungis um 6.500 manns, er þetta mjög lifandi bær, sérstaklega um helgar og um hátíðar eins og Semana Santa páskana, Romería de San Isidrio í maí, Velada í júlí og Feria de Septiembre í september. Í miðbænum er lítið mál að finna þægileg kaffihús til að setjast niður og fá sér kaffi eða drykk í sólinni. Einnig er skylda að smakka hina frægu tapas- og fiskrétti frá Sierra de Cadiz. Við mælum einnig með heimsókn í nærliggjandi borgir eins og Sevilla, Jerez, Ronda, Cádiz og Granada.Á þessu svæði eru yfir 300 sólskinsdagar á ári og á haustin blása svo ferskir vindar frá fjöllunum og gera kvöldin svöl og þægileg. Andalúsíubúar eru einstaklega gestrisnir og vingjarnlegir.
SALAMANCA Salamanca liggur á bökkum Tormes árinnar, 200 km frá Madrid og aðeins 90 km frá Portúgal. Turnar Salamanca standa á þremur hæðum og virðast bjóða fólk velkomið um leið og þeir koma í augsýn. Gljáandi sandsteinn borgarinnar gefur frá sér sérstaka lýsingu, sem gefur henni einstakan blæ. Columbus, Cervantes og Unamuno bjuggu þar allir, og Francisco de Rojas fékk innblástur til að skapa sitt fræga verk "La Celestina" innan veggja borgarinnar. Háskólarnir þrír (þ.á.m. einn sá elsti í Evrópu) og háskólanemendurnir setja svip sinn á borgina. Nemendur alls staðar úr heiminum heimsækja borgina til að læra hina hreinu, hreimlausu Castillian spænsku sem töluð er víða um heim, og til að upplifa nútíma Spán innan fornra veggja borgarinnar.
For the description of Alicante, Buenos Aires, Cádiz / El Puerto de Santa María, Denia, Granada, Madrid, Marbella, Palma de Mallorca, Querétaro, Valladolid and Frankfurt, see here.
|