|
Spaenskunám á Spáni í Mexíkó, læra spænsku, Spaenskuskólar á Spáni ESPAÑOL.PRO - Spænskur málaskóli á Spáni, spænskunámskeið Spáni, sumarnámskeid, spænsk menning |
![]() |
|
|
|
|
||||||||||||||||||||||||
|
Á meðan á dvöl þinni stendur hjálpum við þér ekki aðeins að ná tökum á spænskunni, heldur kynnum við þig einnig fyrir menningu svæðanna þar sem skólar okkar eru staðsettir. Námskeiðin okkar eru hönnuð fyrir litla hópa eða einkakennslu og er mikil áhersla lögð á samtöl og samskiptahæfileika. Kennsla okkar fellur að þörfum hvers og eins og reynt að skapa gott jafnvægi milli málfræði, orðaforða, skilnings og hæfileika til samskipta. Hver hópur hefur að minnsta kosti 3 nemendur og 8 í það mesta, þannig að allir geta tekið þátt og á sama tíma fengið næga athygli frá kennaranum. Nemendum er velkomið að koma með uppástungur í sambandi við uppbyggingu námsins. Ef að færri en 3 nemendur eru í bekk er námstíminn styttur um 1/3. Í lok námsins fær hver nemandi viðurkenningarskírteini fyrir mætingu.
Course 20h Course 30h Courses 20+5 and 20+10h
Undirbúningur fyrir D.E.L.E: "El Diploma de Español como Lengua Extranjera" (D.E.L.E) er eina opinbera spænskuprófið fyrir erlenda nemendur. Það eru 3 stig: Initial, Basic, Superior, og hægt er að taka prófið í "Instituto Cervantes" miðstöðvum um allan heim, eða á Spáni í maí og nóvember. Námskeiðin byrja 3 mánuðum fyrir próf og lengd námsins er um 4-12 vikur með 20 kennslustundum á viku, og líkur nokkrum dögum fyrir sjálft prófið. Skráning í prófið er ekki innifalin í verði námskeiðsins.Stig: Fyrir lengra komna
STIG A: Þetta námskeið er fyrir algjöra byrjendur í spænsku og er farið yfir grundvallaratriði spænskunnar. Samskiptaæfingar sem innihalda hlutverkaleiki og óformlega tjáningu eru einnig kenndar til að gera nemendum kleyft að nota spænsku í daglegu lífi. STIG B: Þetta stig er fyrir byrjendur með einhverja spænskukunnáttu. Í þessu stigi förum við yfir einfalda málfræði og fortíð (Imperfecto og Indefinido). Áhersla er lögð á æfingar sem þjálfa samskipti í daglegu lífi t.d. að versla, fara út að borða og spyrja til vegar. Námsgögn sem notast er við eru t.d. auðskiljanlegar blaðagreinar, myndablöð, lög og einföld ritverk. Samtalsæfingar auka sjálfstraust nemenda og gefa þeim kjark til að taka þátt í einföldum samtölum. Stig C og D: Í þessum stigum eru námsgögn, þema, og textar flóknari og lagt áherslu á samtalshæfileika. Nemendur læra að tala af meira sjálfsöryggi í ýmsum aðstæðum. STIG C er fyrir nemendur með þó nokkra spænskukunnáttu og geta haldið uppi einföldum samræðum á spænsku. Í þessu stigi er grundvallarmálfræði lokið og farið í erfiðari hluti eins og viðtengingarhátt.STIG D í þessu stigi er farið yfir ýmsa þætti spænskunnar og þeir fullkomnaðir.
NÁMSGÖGN
|
| [HOME] [ALICANTE] [BARCELONA] [BILBAO] [CÁDIZ] [CANET] [LA CORUÑA] [DENIA] [GRANADA] [MADRID] [MALAGA] [MARBELLA] [O GROVE] [PALMA] [PRADO DEL REY] [PUERTO] [SALAMANCA] [SANTANDER] [SEVILLA] [TENERIFE] [VALENCIA] [VALLADOLID] [LATIN AMERICA] [Site map] |
|
|
||||||||||||||||||||||||||||